Til baka á forsíðu

    Stefnumótun

    Hvar og hvernig getur gervigreind gagnast í þínum rekstri?

    Ég vinn með stjórnendum að stefnu sem segir hvaða verkefni er fýsilegt að ráðast í fyrst, hvernig þið komið þeim í framkvæmd og hvernig sé hægt að gera það á ábyrgan hátt sem stenst lög og reglur. Ég kynni mér starfsemina, tala við lykilfólk og met stöðu gagna og verkefna sem þegar eru í gangi. Þið fáið áætlun þar sem verkefnum er raðað eftir kostnaði og ávinningi, og skýr næstu skref. Þegar það á við smíða ég líka frumgerðir til að prófa hugmyndir áður en lagt er í stærri fjárfestingu. Umfang fer eftir viðskiptavini.

    Fyrir hverja

    Stjórnendur í meðalstórum og stórum fyrirtækjum og stofnunum sem vilja taka upplýstar ákvarðanir um gervigreind. Þið þurfið enga tækniþekkingu til að byrja.

    Hvað þið fáið

    • Áætlun þar sem verkefnum er raðað eftir kostnaði og ávinningi
    • Mat á áhættu og á því hvar gervigreind hentar best
    • Skýr næstu skref sem teymið getur unnið eftir
    • Frumgerð til að sannreyna hugmynd, þegar það á við
    • Eftirfylgni þegar áætlunin fer í framkvæmd

    Hvernig þetta fer fram

    1. Kynningarfundur. 30 mínútur þar sem við förum yfir stöðuna og ég segi þér hreint út hvort og hvernig ég get hjálpað.
    2. Afmörkun. Ég sendi ykkur tillögu um hvað verkefnið felur í sér, hvenær því verður lokið og hvað það kostar.
    3. Greining. Ég kynni mér starfsemina, tala við lykilfólk og met stöðu gagna og verkefna sem þegar eru í gangi.
    4. Niðurstöður. Við förum saman yfir áætlunina og næstu skref.
    5. Eftirfylgni. Ég fylgi verkefninu eftir og er ykkur innan handar þegar þið komið áætluninni í framkvæmd.

    Verð

    Verðið fer eftir umfangi verkefnisins. Við ákveðum saman hvað það felur í sér og ég sendi ykkur tilboð áður en við byrjum.