Fyrirlestrar og vinnustofur
Fræðsla um gervigreind á mannamáli. Hvað virkar og hvað skiptir máli fyrir ykkar hóp.
Miðað er við að áhorfendur fái tilfinningu og skilning fyrir því sem liggur að baki gervigreindarlausna og hvernig þær lausnir séu frábrugðnar öðrum tæknilausnum. Ég býð upp á almennan fyrirlestur sem tekur um 40 mínútur og sérsniðinn fyrirlestur sem tekur um klukkustund. Í sérsniðnum fyrirlestri tengi ég efnið við ykkar starfsemi og/eða tek dæmi með ykkar gervigreindartólum. Ég býð einnig upp á lengri vinnustofur fyrir hópa.
Fyrir hverja
Ég held fyrirlestra fyrir starfsfólk, stjórnendur, stjórnir og ráðstefnugesti sem vilja skilja gervigreind betur. Enga tækniþekkingu þarf.
Hvað þið fáið
- Sameiginlegan grunn í hópnum, svo umræða um gervigreind á vinnustaðnum byggi á sama skilningi.
- Almennan fyrirlestur, um 40 mínútur
- Eða sérsniðinn fyrirlestur, um klukkustund, unninn út frá ykkar starfsemi
Efni sem hægt er að bóka
- Gervigreindarlæsi
- Hagnýt gervigreind í starfi
- Erindrekar: gervigreind sem vinnur verkefni sjálf
Hvernig þetta fer fram
Þú bókar kynningarfund eða sendir línu. Við veljum saman efni, form og lengd og ég sendi þér tilboð.
Verð
Reiknivélin á verðsíðunni gefur grófa hugmynd um verð eftir formi og fjölda hópa. Opinberar stofnanir og skólar fá lægra verð.
eða sendu línu á saga@sasu.is
