Saga Úlfarsdóttir

    Tækni, ekki töfrar.

    Stefnumótun og fyrirlestrar um gervigreind fyrir fyrirtæki og stofnanir.

    Ég hjálpa stjórnendum og teymum að meta hvar gervigreind getur gagnast, móta stefnu og byggja upp þekkingu innanhúss.

    Fundurinn er án skuldbindinga.

    Saga Úlfarsdóttir

    Ég tengi saman tækni og stefnu

    Ég heiti Saga Úlfarsdóttir og hef unnið með gervigreind og gagnavísindi í meira en áratug. Ég hef þróað gervigreindarlausnir, leitt vöruþróun og stýrt tækniteymum, meðal annars sem yfirmaður vöruþróunar og yfirmaður gervigreindarþróunar hjá Travelshift.

    Ég tengi saman þarfir stjórnenda og viðskiptavina við það sem tæknin getur gert. Ég hjálpa ykkur að meta hvað er hægt að gera og hvað þarf til.

    Ég smíða líka lausnir sjálf og nýti þá reynslu í ráðgjöfinni.

    Ferill

    Þjónusta

    Ég vinn með stjórnendum og teymum í meðalstórum og stórum fyrirtækjum og stofnunum.

    Stefnumótun

    Hvar og hvernig getur gervigreind gagnast í þínum rekstri?

    Þið fáið: Lista yfir verkefni raðað eftir kostnaði, ávinningi og áhættu, áætlun um hvar þið byrjið og eftirfylgni þegar hún fer í framkvæmd.

    Ég vinn með stjórnendum að stefnu sem segir hvaða verkefni er fýsilegt að ráðast í fyrst, hvernig þið komið þeim í framkvæmd og hvernig sé hægt að gera það á ábyrgan hátt sem stenst lög og reglur. Ég kynni mér starfsemina, tala við lykilfólk og met stöðu gagna og verkefna sem þegar eru í gangi. Þið fáið áætlun þar sem verkefnum er raðað eftir kostnaði og ávinningi, og skýr næstu skref. Þegar það á við smíða ég líka frumgerðir til að prófa hugmyndir áður en lagt er í stærri fjárfestingu. Umfang fer eftir viðskiptavini.

    Fyrirlestrar og vinnustofur

    Fræðsla um gervigreind á mannamáli. Hvað virkar og hvað skiptir máli fyrir ykkar hóp.

    Þið fáið: Sameiginlegan grunn í hópnum, svo umræða um gervigreind á vinnustaðnum byggi á sama skilningi.

    Miðað er við að áhorfendur fái tilfinningu og skilning fyrir því sem liggur að baki gervigreindarlausna og hvernig þær lausnir séu frábrugðnar öðrum tæknilausnum. Ég býð upp á almennan fyrirlestur sem tekur um 40 mínútur og sérsniðinn fyrirlestur sem tekur um klukkustund. Í sérsniðnum fyrirlestri tengi ég efnið við ykkar starfsemi og/eða tek dæmi með ykkar gervigreindartólum. Ég býð einnig upp á lengri vinnustofur fyrir hópa.

    Efni

    Þetta eru efnin sem ég fjalla oftast um í fyrirlestrum. Ég aðlaga efnið að ykkar hópi.

    • Gervigreindarlæsi Grunnatriði fyrir alla sem ætla að vinna með gervigreind. Hvað þarf að hafa í huga, hverjir eru möguleikarnir og hverjar eru áhætturnar sem fylgja notkun.
    • Hagnýt gervigreind í starfi Hvernig er hægt að nýta gervigreind í daglegri vinnu.
    • Erindrekar: gervigreind sem vinnur verkefni sjálf Hvernig má smíða og nota erindreka (AI Agents) til að sjá um verkefnin fyrir þig.

    Verð

    Sjáðu grófa verðhugmynd fyrir fyrirlestra í reiknivélinni. Opinberar stofnanir og skólar fá lægra verð. Stefnumótun er verðlögð eftir umfangi.

    Fyrirlestrar og fræðsla

    Auk þess hef ég haldið fyrirlestra og vinnustofur fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana.

    Gagnlegt

    Gátlistar og annað efni til að hjálpa þér að taka betri ákvarðanir.

    Spurt og svarað

    Hvað kostar fyrirlestur?

    Það fer eftir formi, lengd og hversu mikið efnið er sérsniðið. Reiknivélin á verðsíðunni gefur grófa hugmynd. Opinberar stofnanir og skólar fá lægra verð.

    Fyrir hverja er þjónustan?

    Ég vinn mest með stjórnendum og teymum í meðalstórum og stórum fyrirtækjum og stofnunum. Þátttakendur þurfa enga tækniþekkingu.

    Er efnið sérsniðið að okkar starfsemi?

    Já, ef þið viljið. Almennur fyrirlestur hentar vel sem fyrsta skref. Í sérsniðnu efni vinn ég út frá ykkar verkefnum, verkfærum og reglum.

    Hvernig hefst samstarf um stefnumótun?

    Við byrjum á 30 mínútna kynningarfundi þar sem við förum yfir stöðuna og hvernig ég get hjálpað. Síðan sendi ég ykkur tillögu um hvað verkefnið felur í sér, hvenær því verður lokið og hvað það kostar.

    Smíðar þú líka lausnir?

    Já, þegar það á við. Ég smíða frumgerðir til að sannreyna hugmyndir. Áherslan er á stefnu og þekkingu innanhúss.

    Tölum saman

    Bókaðu 30 mínútna kynningarfund. Þið þurfið ekki að vita nákvæmlega hvað þið viljið og fundurinn er án skuldbindinga.

    Á fundinum munum við:

    • Fara yfir stöðuna hjá ykkur og hvað þið viljið ná fram
    • Meta hvort og hvernig ég get hjálpað
    • Skilgreina næstu skref, óháð því hvort við vinnum saman

    Bóka 30 mínútna kynningarfund

    eða sendu línu á saga@sasu.is eða hringdu í 772-3272